Af hverju pökkum við inn gjöfum?

Saga gjafainnpökkunar – listin að gleðja með umbúðum.

Gjafainnpökkun er meira en bara til að vernda gjöfina, innpökkunin er hluti af gjöfinni.

Í gegnum aldirnar hafa ólíkir menningarheimar lagt rækt við að skreyta og vefja utan um gjafir með umhyggju og hugkvæmni og allt er það gert til að sýna virðingu, kærleika og leggja áherslu á hátíðleika tilefnisins.

Í Kína, fyrir meira en 2000 árum, var hefð fyrir að vefja gjafir inn í dúka og silki sem tákn um virðingu og hreinleika. Í Japan þróaðist hin sígilda furoshiki-hefð.  Falleg og fjölnota efni voru bundin með listilegu mynstri og hnútum. Í Evrópu varð innpökkun í pappír almenn á 19. öld þegar prentun varð algengari og með því kom áberandi mikil litaflóra og skreytingar með borðum til þess að móta þá gjafahefð sem við þekkjum í dag.

Við hjá Vorhús erum sannfærðar um að innpökkunin skipti máli, bæði til að leggja áherslu á gjöfina og auka gleðina hjá þeim sem fær pakkann í hendurnar.  Með því að nota fallegan pappír og vanda okkur við hverja gjafainnpökkun þá erum við að segja sögu sem verður hluti af sjálfri gjöfinni.

Hvort sem um er að ræða smágjöf eða gjöf við hátíðlegt tilefni, þá felst í innpökkuninni virðing fyrir bæði gjöfinni og þeim sem hana fær.