Leiðbeiningar og góð ráð um meðferð á handklæðum

Nokkur góð ráð um meðferð og þvott á handklæðum.

Til að halda handklæðum mjúkum, hreinum og endingargóðum er mikilvægt að fara vel með þau og þvo á réttan hátt.

Handklæði eru notuð daglega og eiga að þurrka vel, en til þess að þau haldi þeim eiginleika þarf að huga að nokkrum atriðum.

Þvottur

Við mælum með að handklæði séu þvegin við 40-60°C með mildu þvottaefni.   Þannig er tryggt að óhreinindi þvoist í burtu á áhrifaríkan hátt án þess að skemma þræðina í efninu. Sterk bleikiefni eða þvottaefni með optískum hvíttunar efnum geta skemmt litina og stytt líftíma handklæðanna.

Forðist mýkingarefni.

Það kann að hljóma mótsagnakennt, en mýkingarefni eru ekki góð fyrir handklæði. Þau mynda filmu yfir þráðunum sem dregur úr rakadrægni – eiginleikanum sem gerir handklæði gagnleg! Ef þú vilt mýkja handklæði án mýkingarefnis geturðu bætt smá ediki út í skolvatnið af og til, sem hreinsar og mýkir á náttúrulegan hátt.

Þurrkun

Handklæði má setja í þurrkara við meðalhita – það hjálpar til við að halda þeim mjúkum. Mikilvægt er að ofþurrka ekki, þar sem það getur valdið stífni eða rýrnun í þráðunum. Ef þú kýst að hengja þau upp til þerris er gott að hrista þau létt áður og eftir, til að þau haldist mjúk.

Almenn ráð

Þvoðu ný handklæði áður en þú notar þau í fyrsta sinn. – Ekki þvo með fötum sem gefa frá sér ló, eða með rennilásum og frönskum rennilásum sem geta skemmt lykkjurnar.  – Forðastu að strauja handklæði; það pressar lykkjurnar niður og minnkar mýktina.

Rétt meðhöndlun tryggir að handklæðin þín haldist mjúk, falleg og rakadræg í langan tíma.