Nú þegar líður að jólum eiga fjölskyldur oft gæðastundir í eldhúsinu við bakstur. Þar koma saman ungir og aldnir og gleðin ræður ríkjum. Við piparkökubakstur verða ýmsar fígúrur til og eru skreyttar í öllum regnboganslitum.
Eftir nokkrar tilraunir í eldhúsinu varð þessi uppskrift fyrir valinu sem besta piparkökuuppskriftin að mati Vorhúsa.
Njótið með fjölskyldu og vinum – Gleðilega hátíð
Bestu piparkökurnar - uppskrift
1 kg hveiti
4 tsk natron
4 tsk kanill
2 tsk engifer
2 tsk negull
¼ tsk pipar
2 tsk hjartasalt
500 gr sykur
2 dl síróp
2 dl kaffi
360 gr smjör
Hnoðið allt hráefnið saman, fletið út og skerið út pipakökur og raðið með góðu millibili á plötu með bökunarpappír. Bakið við 200°C þar til kökurnar fara að brúnast (þær lyftast upp í ofninum og detta svo niður, þá eru þær yfirleitt tilbúnar) Takið út og látið kólna. Skreytið síðan með glassúr og stráið bismark muldum brjóstsykri yfir blautan glassúrinn. ATH. einnig er hægt að nota mulda brjóstsykursstafi ef erfitt reynist að finna Bismark
Gleðileg jól 😊
