Kertahúsið – Ilmkerti – Gönguferð

6,900 kr.

Bústaðaferð ilmkerti frá Kertahúsinu.

Kertið er úr jurtavaxi. 250ml af vaxi, brennslutími um það bil 40 tímar.

Ilmurinn er unninn úr hvönn, blóðbergi, melgresi og villtum jurtum.

Ilmurinn af kertinu tekur þig
norður á Hornstrandir, við fjöruna
á leið í gönguferð um friðlandið.
Angan af nýútsprunginni hvönn
með áferð af melgresinu sem þú rennir
eftir höndunum á meðan þú gengur hjá.
Í fjarska vex blóðbergið í klettunum og
ferskur ilmur af villtum íslenskum jurtum
í loftinu. Í bakpokanum er heitt vatn í
stálbrúsa, próteinstöng og morgunkorn í
pokum allt vigtað eftir kúnstarinnar reglu
til að duga í einhverja daga. Ilmurinn af
villtri náttúru tekur þig í ferðalag sem
færir þér ró og innri frið.

Kertahúsið er hugarfóstur hjónanna Gunnars Inga Hrafnssonar og Sædísar Ólafar Þórsdóttur, búsett á Vestfjörðum á Suðureyri.

Íslensk framleiðsla.