Persónuverndarstefna

VORHUS ehf.

VORHUS ehf. hefur sett sér stefnu í samræmi við nýja persónuverndarlöggjöf (GDPR) sem kom til framkvæmdar 25. maí 2018 í Evrópu. Persónuvernd og öryggi því tengt er lykilatriði í starfsemi félagsins og hjá starfsmönnum þess.

Almennt

VORHUS ehf. leggur áherslu á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina.
VORHUS ehf. leggur áherslu á að farið sé með allar persónuupplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga (Persónuverndarlögin).
VORHUS ehf. leggur áherslu á að vinnsla á persónugreinanlegum upplýsingum sé takmörkuð, að því marki að hægt sé að veita þá þjónustu sem félaginu ber að veita viðskiptavinum.
VORHUS ehf. leggur áherslu á ábyrga vinnslu upplýsinga um viðskiptavini og að sú vinnsla sé unnin á ábyrgan, öruggan og löglegan hátt.
VORHUS ehf. leggur áherslu á að allar upplýsingar um viðskiptavini VORHUS ehf., sem þeir láta félaginu í té eða sem VORHUS ehf. sækir með þeirra leyfi til þriðja aðila séu eingöngu nýttar í þeim tilgangi að hægt sé að veita þeim þá þjónustu sem þeir eiga rétt á.

PERSÓNUUPPLÝSINGAR

VORHUS ehf. safnar og varðveitir persónuupplýsingar viðskiptavina. Sem dæmi má nefna samskiptaupplýsingar í gegnum vefsíðu og netverslun, skráningar í leiki, á póstlista og aðrar upplýsingar sem viðskiptavinir veita af fúsum og frjálsum vilja. Aðeins er safnað nauðsynlegum upplýsingum um viðskiptavini í samræmi við þá þjónustu sem þeir sækja til VORHUS ehf.

VORHUS ehf. ábyrgist;

Að nota aðeins persónuupplýsingar í lögmætum tilgangi.
Að þegar deilt er persónuupplýsingum félagsmanna með þriðja aðila, í lögmætum tilgangi, t.d. vegna tæknilegs viðhalds eða þjónustu vegna greiðslu (hér með þriðju aðilar), skuldbindur VORHUS ehf. sig til að vinnsla slíkra upplýsinga takmarkist við þá þjónustu sem inna skal af hendi.
Að tryggja fullan trúnað þriðju aðila við vinnslu persónugreinanlegra upplýsinga.
Að viðskiptavinir VORHUS ehf. séu eigendur að sínum persónuupplýsingum.

RÉTTUR HINS SKRÁÐA

VORHUS ehf. leitast við að tryggja að réttindi hins skráða séu tryggð hjá félaginu. Með því er meðal annars átt við rétt einstaklinga til að fá leiðrétt eða breytt upplýsingum um sig, fá afrit af þeim upplýsingum sem skráð eru hjá félaginu og fá upplýsingum um sig eytt þegar þessi réttindi eiga við. Í sumum tilfellum kann félaginu að vera óheimilt að verða við beiðni um eyðingu persónuupplýsinga, t.d. þegar lagaskylda kveður á um skráningu persónuupplýsinga.

Frekari upplýsingar um rétt hins skráða hjá VORHUS ehf. má nálgast með því að hafa samband í tölvupóstfangið: info@vorhus.is.

TÖLFRÆÐILEGAR SAMANTEKTIR

VORHUS ehf. áskilur sér rétt til að útbúa ópersónugreinanlegar tölfræðilegar samantektir og aðrar afleiddar upplýsingar sem án alls vafa eru ekki persónugreinanlegar og nota sér þær í starfi félagsins.

HEIMASÍÐA VORHUS ehf.

Á vefsíðu félagsins, kann félagið að safna tæknilegum upplýsingum um notkun, t.d. um tegund vafra, hvaða vefsíður notendur heimsækja á vefsvæðinu, heildartímann sem notendur verja á vefnum o.s.frv. Þess konar upplýsingar eru eingöngu notaðar til að bæta upplifun notenda af þjónustunni, t.d. með því að bæta hönnun þjónustunnar eða láta notendur vita af hugsanlegum tæknilegum vandamálum í búnaði þeirra. Engum persónugreinanlegum upplýsingum skal safnað saman við slíka vinnslu.

UPPLÝSINGAR TIL 3. AÐILA

VORHUS ehf. skuldbindur sig að afhenda hvorki, né selja eða leigja persónuupplýsingar viðskiptavina VORHUS ehf. til þriðja aðila, nema félaginu sé það skylt samkvæmt lögum eða samkvæmt skriflegri beiðni viðskiptavinar.

BÓKHALDSGÖGN

Bókhaldsgögn VORHUS ehf. eru vistuð í samræmi við öryggiskröfur persónuverndarlaganna og laga um færslu bókhalds og varðveislu þess. Geymsla og vistun slíkra upplýsinga miðast við lög þess efnis.

TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR

Að því marki sem gildandi lög heimila, ber VORHUS ehf. enga skaðabótaábyrgð vegna atvika sem upp kunna að koma vegna þess hvernig þjónustan er notuð eða útveguð, nema ef hægt er að rekja slík atvik til stórfeldrar/vítaverðrar vanrækslu eða misferlis af ásetningi af hálfu VORHUS ehf.

VORHUS ehf. ber enga ábyrgð á töfum sem verða á þjónustun eða því að þjónustan virki ekki sem skyldi vegna óviðráðanlegra atvika (force majeure).

LÖG OG LÖGSAGA

Þessi persónuverndarstefna fellur undir íslensk lög. Leysa skal úr ágreiningi sem kann að rísa, eða koma upp í tengslum við persónuverndarstefnuna fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra, sé ekki er hægt að leysa úr honum á annan hátt.

BREYTINGAR

VORHUS ehf. áskilur sér rétt til þess að breyta og uppfæra persónuverndarstefnu þessa hvenær sem er. Við látum vita af slíkum breytingum á heimasíðu VORHUS ehf.

TENGILIÐAUPPLÝSINGAR

Ef þú óskar eftir nánari upplýsingum varðandi persónuverndarstefnu VORHUS ehf. skaltu hafa samband við okkur: VORHUS ehf. Netfang: info@vorhus.is